Opens in a new tab

Nútímaleg einingahús fyrir íslenskar aðstæður

Einfaldari leið að nýju heimili

Vönduð einingahús fyrir heimili, sumarhús, gestahús og atvinnurekstur. Við aðstoðum þig við að finna réttu lausnina og sjáum um ferlið frá pöntun til afhendingar.

TICAB HouseLöggiltur dreifingaraðili

Hús fyrir fjölbreyttar þarfir

Frá nettum smáhýsum til rúmgóðra fjölskylduhúsa og lausna fyrir atvinnurekstur – finndu húsið sem hentar þér.

Einfaldari leið að nýju húsi

Fullbúin einingahús með reynslu á Íslandi

Hús frá TICAB House hafa verið flutt til Íslands um árabil og reynslan af þeim við íslenskar aðstæður hefur verið mjög góð. Við byggjum því ekki aðeins á loforðum framleiðandans – heldur raunverulegri reynslu af húsunum hér á landi.

Húsin eru framleidd og fullkláruð í verksmiðju áður en þau eru flutt til Íslands. Kaupandinn velur útfærslu og frágang, svo sem gólfefni, veggklæðningar, innréttingar og aðra valkosti. Húsið kemur síðan fullbúið að innan, með frágengnu baðherbergi, sturtu, salerni og flísum ásamt eldhúsinnréttingu samkvæmt valinni útfærslu.

Á Íslandi þarf að undirbúa lóð og undirstöður og sjá til þess að nauðsynlegar veitutengingar séu tilbúnar. Húsinu er síðan komið fyrir á undirstöðum og það tengt við rafmagn, vatn og fráveitu.

Við gerum ferlið einfalt

Hjá Su-Casa færðu persónulega ráðgjöf frá fyrstu hugmynd að afhendingu. Við aðstoðum þig við að velja rétta húsið, stærð og útfærslu og sjáum um samskipti við framleiðanda, pöntun og innflutning til Íslands.

Húsin eru framleidd af TICAB House samkvæmt þeirri útfærslu sem þú velur og koma fullbúin til landsins. Þannig veistu frá upphafi hvað þú ert að fá og hefur einn íslenskan aðila til að leita til í gegnum allt ferlið.

Frá hugmynd að fullbúnu húsi – við leiðum þig í gegnum ferlið.

Fá ráðgjöf

Af hverju að velja Su-Casa?

01 — Persónuleg ráðgjöf

Við hjálpum þér að finna rétta húsið út frá þínum þörfum, hugmyndum og fjárhagsramma. Þú velur stærð, útfærslu og frágang og við leiðum þig í gegnum ferlið.

02 — Reynsla við íslenskar aðstæður

Hús frá TICAB House hafa verið flutt til Íslands um árabil og reynslan af þeim hér á landi hefur verið mjög góð. Þú ert því að velja hús sem þegar hafa sannað sig við íslenskar aðstæður.

03 — Fullbúið að innan

Húsið er fullklárað í verksmiðju samkvæmt þinni útfærslu og kemur fullbúið að innan til Íslands – með innréttingum, gólfefnum og frágangi samkvæmt því sem þú hefur valið.

04 — Fjölbreytt úrval og útfærslur

Frá nettum smáhýsum til rúmgóðra fjölskylduhúsa. Fjölbreyttar stærðir, grunnmyndir og útfærslur gera þér kleift að finna lausn sem hentar þínu verkefni.

05 — Íslensk þjónusta alla leið

Su-Casa sér um ráðgjöf, samskipti við framleiðanda, pöntun og innflutning. Þú hefur því íslenskan tengilið sem aðstoðar þig frá fyrstu hugmynd að afhendingu.

Húsin okkar

Sýndarferð um húsin