Um Su-Casa
Reynsla af innflutningi – ný leið í húsnæði
Su-Casa er hluti af Leiguhýsi ehf. og varð til sem eðlilegt næsta skref í starfsemi fyrirtækisins.
Leiguhýsi hefur þegar byggt upp reynslu og traust viðskiptasambönd í Póllandi, meðal annars með innflutningi frá Niewiadów. Með þeirri reynslu að baki sáum við tækifæri til að nýta þekkingu okkar á innflutningi, flutningum og viðskiptum við pólska framleiðendur til að færa út kvíarnar og bjóða íslenskum kaupendum vönduð, fullbúin einingahús.
Þar varð Su-Casa til.

Hús sem hafa þegar sannað sig á Íslandi
Við völdum að vinna með TICAB House vegna gæða húsanna, fjölbreyttra útfærslna og ekki síst þeirrar reynslu sem þegar er komin á húsin hér á landi. Einingahús frá TICAB House hafa verið flutt til Íslands um árabil og reynslan af þeim við íslenskar aðstæður hefur verið mjög góð. TICAB framleiðir og flytur einingahús til 15 landa í Evrópu.
Húsin eru framleidd og fullkláruð í verksmiðju áður en þau eru flutt til Íslands. Kaupandinn velur útfærslu, innréttingar og frágang og húsið kemur fullbúið að innan samkvæmt því vali.
Íslenskur aðili – frá fyrstu hugmynd að afhendingu
Með Su-Casa viljum við gera kaup á einingahúsi eins einföld og fyrirsjáanleg og mögulegt er. Við aðstoðum við val á húsi og útfærslu, sjáum um samskipti við framleiðanda, pöntun og innflutning og erum íslenski tengiliðurinn í gegnum ferlið.
Markmiðið er einfalt: að bjóða vönduð hús sem hafa reynslu á Íslandi – og gera leiðina að nýju húsi einfaldari.
Af hverju SU-CASA?
Vistvæn efni
Húsin eru úr vistvænu timbri og einangruð með steinull.
Orkunýting
Nútíma tækni dregur úr orkunotkun og minnkar útgjöld.
Sérsniðin hönnun
Hægt er að sérsníða stærð, skipulag og frágang að þínum þörfum.

